Alveg finnst mér það ótrúlegt hvernig sumir framkvæmdarstórar geta haldið stöðunum sínum. Tökum sem dæmi Bryan Robson hjá Middlesbrough hann hefur ekki gert neitt annað en að eyða alveg fullt af pening en hann hefur aldrei náð neinum árangri með Middlesbrough en samt neita stjórnarmenn Middlesbrough að reka hann. Síðan líka John Gregory hjá Aston Villa hann er með þetta fína lið en hann bara getur ekki náð árangri með þeim. Ef ég væri í stjórn hjá öðru hvoru þessara liða væri það mitt fyrsta verk að reka þessa menn og fá einhvern sem hefur allavega eitthvað vit á fótbolta t.d. Kevin Keegan eða George Graham.