Bayern vann Bayern München vann frekar sanngjarnan 0-1 sigur á Manchester í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Varamaðurinn Paulo Sergio sem skoraði eina mark leiksins á 86. mínútu.

Bayern hefðu getað bætt við öðru marki undir blálokin, en þá skaut Alexander Zickler yfir úr góðu færi. Zickler hafði rétt áður átt skot í slá hjá Manchester. Markverðir liðanna, Fabian Barthez og Oliver Kahn, áttu stórleik.

Að mínu mati voru þeir Barthez og Silvestre bestu leikmenn United en Beckham og Giggs voru slakastir.

Hér er smá tölfræði úr leiknum.
Man Utd. - Bayern
13 Goal attempts 12
5 On Target 6
8 Off Target 5
0 Hit Woodwork 1
6 Corners 5
16 Fouls 14
4 Offsides 5

Það er ljóst að erfiður leikur bíður Man.Utd í Þýskalandi, og ekki bætir það úr skák að Beckham verður í banni.