Núna styttist óðfluga í að stærstu knattspyrnudeildir evrópu fari af stað. Enska tímabilið hefst með stórleik Manchester United og Arsenal í úrslitaleiknum um Samfélagsskjöldinn og verður sá leikur beint á SÝN.

Markmið þessa pósts er til þess að athuga viðhorf fólks sem stundar áhugamálið. S.s. hvað vill fólk fá á þetta áhugamál? Við erum búnir að setja upp fótboltafréttakubb sem fólk getur fengið aðgang á til þess að skrifa fréttir. Ef þú ert með einhverja góða uppástungu hvað megi betur fara eða hvað vantar hérna ekki hika við að svara greininni með þinni hugmynd.

Kveðja,
yngvi