Ítalski hægri-bakvörðurinn Christian Panucci sem leikur með Inter Milan á Ítaliu hefur verið orðaður við Chelsea. Marcelo Lippi sem þjálfar Inter Milan hefur ekki haft mikinn áhuga á honum enda samþykkti hann kaupverðið á honum sem var 350 milljónir.

“Chelsea væri mjög góð lausn fyrir mig og enska úrvalsdeildin er mjög sterk. Ég vona að umboðsmaður minn nái samkomulagi við Chelsea,” sagði Panucci.

Hann gekk til liðs við Inter Milan í fyrra frá Real Madrid þar sem hann var Evrópumeistari 1998.