Andri Sigþórs til Fylkis!!! Landsliðsmaðurinn Andri Sigþórsson verða í láni hjá Fylki í sumar. Náðst hefur samkomulag við Andra og austuríska liðið Salzburg um lán á leikmanninum í sumar og mun hann koma til landsins fyrir fyrsta leik gegn KR um miðjan maí. Það efast enginn um að Andri kemur til með að styrkja hópinn verulega og eru þetta mikil gleðitíðindi fyrir Árbæinga en þeir hafa undanfarið verið að styrkja hópinn fyrir átök sumarsins.

Fylkismenn verða til alls líklegir næsta sumar!