Eiður Smári Guðjohnsen sonur hins gamalkunna Arnórs Guðjohnsen hjá Chelsea fékk í gærkveldi tækifæri með Chelsea í æfingaleik gegn Hollenska liðinu Heerenveen. Hann náði ekki að skora enda kom hann inná í síðari hálfleik ásamt ítalanum magnaða Gianfranco Zola. Chelsea sigraði 3:1 og lið Chelsea var svona skipað:

Ed De Goey - Mario Melchiot, Franck Leboeuf, Marcel Desailly, Celestine Babayaro, Mario Stanic, Roberto Di Matteo, Dennis Wise, Gustavo Poyet, Jimmy Floyd Hasselbaink, Tore Andre Flo.