Það er alveg pottþétt í mínum huga að Fylkismenn taka þetta í sumar og vinna K.R.inga. Þeir eru búnir að styrkja hópinn mikið frá því í fyrra t.d. búnir að fá Steingrím Jóhannesson frá Í.B.V. Síðan skemmir það nú ekki að K.R. er búið að missa sinn sterkasta leikmann Andra Sigþórsson og þá eiga þeir ekki eftir að geta neitt í sumar þannig að ég held að Fylkir eigi eftir að rústa þessu í sumar líkt og Manchester United er að gera í ensku deildinni núna.