Ég var að lesa grein á acparma.it og í henni kom fram að hinn snjalli varnarmaður, Fabio Cannavaro ætlar ekki að yfirgefa herbúðir Parma. Þetta hafði hann um málið að segja: “Þessi saga er bara slúður. Ég vil nýta þetta tækifæri til að endanlega drepa þessa sögu: Ég er bundinn langtíma samningi við Parma sem enn eru fjögur ár eftir af, og þó svo væri ekki, ætla ég mér ekki að fara.”
Þar fáiði það beint í æð! :)

Einning kemur fram í greininni að bæði Gianluigi Buffon og Lilian Thuram hafi fullan hug á að vera áfram hjá Parma. Allir þrír hafa mikið álit á Parma og hlakka mikið til næstu leiktíðar þar sem Parma MUN spila í Meistaradeildinni og í baráttunni um Scudettuna!

Forza Parma