Alvarleg mistök hjá stjórnarmönnum Parma? Hið hræðilega virðist ætla að gerast, en nú virðast vera meiri líkur á því heldur en minni að hinn frábæri markvörður Parma, Gianluigi Buffon, sé á förum frá félaginu.

Buffon hefur verið ánægður hjá Parma en stjórnarmenn félagsins hafa víst ekkert haft fyrir því að bjóða Buffon nýjan samning. Í janúar hefur Buffon vanalega vitað allt um framtíð sína en nú er apríl að renna upp og enn hefur Buffon ekkert heyrt frá stjórnarmönnum Parma. Buffon hefur sjálfur sagt að 70% líkur væru á því að hann yrði áfram hjá Parma en 30% að hann myndi fara en nú virðist vera komið annað hljóð í strokinn.

Ég ætla rétt að vona Parma vegna að þeir drattist til að semja við þennan snjalla markvörð.
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _