Tvö lið berjast nú um Íslandsmeistaratitil karla í knattspyrnu, það eru Fyklkir og KR. Fylkismenn hafa 5 stiga forskot á KR, en KR-ingar eiga leik til góða. Sunnudaginn 20. ágúst nk. verður leikur KR og Fylkis í Frostaskjólinu. Vinni KR-ingar þann leik verður aðeins tveggja stiga munur á félögunum og þá þurfa KR-ingar að sigra Leiftursmenn þrem dögum síðar til þess að krækja í toppsætið í deildinni. Það verður sannkallaður úrslitaleikur í Vesturbænum 20. ágúst. Mætum á völlinn og styðjum okkar lið til sigurs!