Góðar fréttir fyrir Tottenham Í kjölfarið af því að Glenn Hoddle var ráðinn stjóri Spurs, þá ætla tvær af stærstu stjörnum liðsins að skrifa undir nýjan samning. Darren Anderton ætlar að semja til tveggja ára og Sol Campbell ætlar að semja til fjögura ára.
Sérstaklega er mikilvægt fyrir Spurs að halda Campbell en hann er einhver sterkasti varnarmaður ensku úrvalsdeildarinnar.