Patrik Berger, leikmaður Liverpool gæti komið inn í lið Liverpool fyrir stórleikinn gegn Manchester United á laugardag en hann hefur verið frá síðan í október vegna meiðsla á hné. Berger hefur komið inná í tveimur varaliðsleikjum hjá Liverpool og ekki kennt sér neins meins og segist treysta sér til þess að spila gegn meisturunum.