Litmanen frá í sex vikur Jari Litmanen úlnliðsbrotnaði í landsleik Englands og Finnlands og verður því frá í sex vikur. Þetta er mikill missir fyrir lið Liverpool sem þarf alla sína bestu leikmenn í baráttunni um að ná meistaradeildar sæti og til að geta sigrað í evrópukeppni félagsliða og enska bikarnum.