Var að fá nettilboð frá Icelandair og þar eru þeir að selja miða á landsleikinn, hótelgistingu og flug á 35.580 kr. Iceland Express er að selja sama pakka en reyndar plús rútu frá 39.900 kr til 49.900 kr. Þetta kemur mér mjög á óvart þar sem ég hélt að það væri alltaf ódýrara með IE eða svo segir könnuninn alla veganna..Ég myndi líka ekki nenna að taka rútu frá Stanstead í 4 tíma, miklu frekar að fara á Heatrow og taka lestina frá Paddington en það fer hraðlest frá Heathrow og Paddington..Og það er ekki dýrt..

Ég kaupi mér pottþétt pakkann hja Icelandair enda er maður alltaf að hugsa um aurinn..