Landsliðið tilkynnt Atli Eðvaldsson hefur tilkynnt byrjunarlið landsliðsins sem spilar við Búlgari í dag.

Árni Gautur verður í markinu, Lárus Orri og Arnar Viðarsson verða bakverðir en Eyjólfur og Hermann verða miðverðir.
Þórður verður á hægri kanntinum og Heiðar Helguson á þeim vinstri á meðan Rúnar og Brynjar verða á miðri miðjunni.
Frammi verða svo Eiður Smári og Ríkharður.

Menn tala um að þeir ætli sér að sigra leikinn en ég er þeirrar skoðunar að við getum það með þennan mannskap, en það er bara spurning hversu góða liðsheild Atli getur gert úr þeim á þessum stutta tíma sem þeir hafa verið saman.
Varamenn eru Birkir Kristinsson, Arnar Grétarsson, Helgi Kolviðsson, Tryggvi Guðmundsson, Andri Sigþórsson og Helgi Sigurðsson. Allir þessir leikmenn geta komið inná og breytt gangi leiksins og er gaman að sjá hvað Atli fer með marga sóknarmenn í þetta verkefni og segir það hve stórhuga hann er!