Nú bendir allt til þess að fyrrum Spurs-stjarnan Glenn Hoddle muni taka við þjálfun Tottenham í byrjun næsta mánaðar. Samningaviðræður eru vel á veg komnar og er mikil ólga og óánægja innan Southampton með það að karlinn sé hugsanlega að fara. Sem sönnum Tottenham stuðningsmanni þá lýsi ég yfir mikilli gleði með þetta, það var annað hvort Hoddle eða Gascoigne.