Gabriel Batistuta gefur ekki mikið fyrir þær yfirlýsingar Alessandro Del Piero að Juventus geti enn unnið ítalska meistaratitilinn. Batistuta segir að eini andstæðingur Roma séu þeir sjálfir en ekki Juventus.

“Að sjálfsögðu trúir Del Piero því. Þeir þurfa einhverja hvatningu annars tæki því ekki að halda áfram að æfa fyrir þá.

”Ég virði að sjálfsögðu skoðun Del Piero, en þetta hljómar eins og fyllerísröfl í mínum eyrum. Ef við værum hræddir við að tapa titlinum núna með 7 stiga forystu eigum við ekki skilið að vinna titilinn." sagði Batistuta.