Fylkir að skoða Bandaríkjamann Fylkismenn ætla að hafa 23 ára gamlan Bandaríkjamann til reynslu í æfingaferð á Spáni í apríl. Maðurinn heitir Joey DiGiamarino og er samningsbundinn þýska stórliðinu Bayer Leverkusen.

Hann hefur ennþá ekkert leikið með Leverkusen þar sem hann er nýbúinn að gangast undir uppskurð. Ætlunin er að Þjóðverjarnir láni Joey til Fylkismanna í sumar til að koma honum í leikæfingu.

DiGiamarino er vinstri fótar leikmaður og spilaði áður með Colorado Rapids í heimalandinu en samdi við Leverkusen í janúar.