Denis Irwin, írski varnarmaðurinn sterki hjá Man Utd lék um helgina sinn 500 leik fyrir félagið. Kappinn er aðeins 6 leikmaðurinn í sögu félagsins til að ná þessum áfanga. Hinir eru Sir Bobby Charlton, Bill Foulkes, Alex Stepney, Tony Dunne og Joe Spence. Irwin var keyptur til United frá Charlton fyrir 625.000 sterlingspund árið 1990.Hann hefur unnið allt sem hægt er með félagsliði og hefur kappinn fengið fleiri medalíur en vantar enn 259 leiki til að ná Sir Bobby Charlton sem lék 759 leiki fyrir félagið.