John Aldrige hættur með Tranmere. John Aldrige sagði í dag af sér sem framkvæmdarstjóri 1. deildarliðsins Tranmere Rovers. Aldrige fór á fund með stjórn Tranmere eftir 3-2 tap gegn Barnsley. Þar var ákveðið að hann skyldi láta af störfum. Tranmere var 2-0 yfir í hálfleik en fékk á sig þrjú mörk í seinni hálfleik og situr nú á botni 1.deildar.