Leikmenn Man. City fara til Spánar. Alls fjórtán leikmenn Manchester City fara til spánar í æfingabúðir á morgunn(sunnudaginn 18.) og verða þeir þar í viku. Aðal tilgangurinn með þessari ferð er að æfa á almennilegum og sléttum æfingavöllum og hvíla þeirra eigin æfingavelli. Eins og allir vita þá hefur veðrið ekki verið eins og best verður á kosið á Bretlandi og þessvegna eru bæði keppnis- og æfingavellir í slæmu ásigkomulagi. Ekki veitir því af að hvíla vellina í einhvern tíma. Man. City er ekki eina liðið sem gripið hefur til þessa ráðs, því Newcastle fór í eina slíka ferð fyrr á tímabilinu.