Graham rekinn. Tottenham hefur rekið framkvæmdarstjóra sinn George Graham og ætti það ekki að koma neinum á óvart! Tottenham hefur spilað leiðinlegan og slakan fótbolta undir stjórn hans og er það mikið gleði efni að hann sé látinn fara og vona ég að hans dagar sem framkvæmdarstjóra í efstu deild á Englandi séu taldir.
Líklegt þykir að Glenn Hoddle taki við af Graham og einnig hefur Vialli verðið nefndur líklegur.