ÍA tapaði fyrir Gent Skagamenn töpuðu fyrr í kvöld á móti belgíska liðinu Gent, 0:3. Fyrsta markið skoruðu þeir eftir hálftíma leik, en fram að því hafði verið jafnræði með liðunum. Belgarnir tvíefldust við markið og áttu allan leikinn eftir þetta. Skagamenn mega teljast heppnir með að tapið hafi ekki verið stærra, því Belgarnir misnotuðu vítaspyrnu, auk þess sem þeir áttu hvert færið á fætur öðru í síðari hálfleik. Sanngjarn sigur gestanna, 0:3.