FIFA gaf út nýjan styrkleikalista í morgun og falla Íslendingar um fjögur sæti sem er með því slakara á listanum. Liðið er nú í 54-55.sæti með landsliði Angóla!!! Brasilía er á toppnum sem fyrr, Frakkar í öðru og Argentínumenn í þriðja, en Portúgalar (4) eru á góðri siglingu upp listann. Englendingar (16) skríða loks upp fyrir Bandaríkjamenn og er það léttir fyrir þá.

Svona er topp 10:

1. Brasilía
2. Frakkland
3. Argentína
4. Portúgal
5. Ítalía
6. Tékkland
7. Spánn
8. Paragvæ
9. Holland
10. Júgóslavía