Vieri ekki ánægður á Ítalíu?! Jesus Gil, forseti Atletico Madrid, hefur sagt í viðtali að Christian Vieri væri orðinn leiður á lífinu hjá Inter og vildi helst losna frá Ítalíu. Stuðningsmenn Inter hafa t.d. baulað á hann í vetur. Jesus Gil sagði þó að þeir hefðu ekki rætt um það hvort Vieri vildi koma aftur til Atletico.

Marco Tardelli, þjálfari Inter, blés á þær sögusagnir að Vieri væri óánægður hjá félaginu. “Hann mætir fyrstur á æfingar og fer síðastur. Vieri elskar Inter, trúið mér.”

Þá er það bara spurningin, hver er lygarinn? Gil eða Tardelli?