Raúl í eins leiks bann Raul var dæmdur í eins leiks bann fyrir markið sem hann skoraði með hendinni í leik Real Madrid gegn Leeds fyrr í vikunni. Hann var einnig dæmdur til að greiða rúmlega einnar milljón króna sekt, eða 20.000 svissneska franka. Aganefnd UEFA mun hafa tekið tillit til þess að Raul sé sérlega prúður leikmaður. Dómari leiksins fór eftir leik liðanna í búningsklefa Leedsara og bað hvern og einn leikmann Leeds afsökunar á mistökunum með handabandi. Raúl missir af leik Real og Anderlecht í næstu viku, en Figo verður einnig í banni í þeim leik.