Totti óttast ekki um stöðu sína Francesco Totti, fyrirliði Roma hefur sagt að hann sé alls ekki hræddur um að staða hans í liðinu sé komin í hættu vegna kaups liðsins á 18 ára undradrengnum Antonio Cassano frá Bari. Hann hefur varað Cassano við því að lífið hjá Roma sé alls ekki auðvelt.

Aðal-staða Cassano er rétt fyrir aftan framherjana sem er einmitt sú staða sem Totti spilar. Sensi forseti liðsins fékk einnig hrós frá Totti fyrir að halda áfram að styrkja liðið með enn meiri kaupum.