KR-ingar hafa samið við enska 1. deildar liðið Portsmouth um væntanlegt kaupverð á sóknarmanninum snjalla, Andra Sigþórssyni. Söluverð hljóðar upp á um 40 milljónir króna, að því er fram kemur í breska fréttamiðlinum Sky. Í samtali við Andra sjálfan segist hann ekki vita neitt um málið nema KR sé búið að samþykkja tilboð sem í hann barst. Andri hefur ekkert heyrt frá Portsmouth og enn síður er hann búinn að skrifa undir samning varðandi sölu til enska 1. deildar félagsins. Það er því ekki enn fullkomlega ljóst að Andri fari, en allar líkur eru þó á því. Í stað hans hafa KR-ingar fest kaup á hollenska sóknarmanninum Maikel Renfurm.