Christian Vieri hefur látið hafa eftir sér að verði skipt um þjálfara hjá Inter (sem er frekar líklegt, skulum við segja) þá sé honum ekki vært í Mílanóborg. Juventus og Barcelona lýstu þegar í stað yfir áhuga á að fá hann í sínar raðir, en þar sem hann segist ekki hafa áhuga á að spila utan Ítalíu er allt útlit fyrir að hann fari aftur til “Gömlu konunnar”. Líklegast er talið að Inzaghi fari þá til Internazionale sem hluti af skiptidíl. Og það væri gott á Pippo!!!