Rio Ferdinand var dæmdur í 8 mánaðabann rétt í þessu fyrir að hafa skrópað í lyfjaprófi…Það var sérstök nefnd sem úrskurðaði þetta…þeir Sir Alex Ferguson, Nicky Butt og Eyal Berkovic töluðu máli Ferdinands og einnig bárust réttinum bréf frá harry Redknapp og Sven-Göran Erikson til stuðnings Ferdinand…aðalvitnið í þessu máli var Mike Stone læknir Manchester United sem lýsti því sem gerðist 23.september (sá dagur sem Ferdinad skrópaði í lyfjaprófinu) í 2 og hálfan tíma.

Mörgum finnst þetta alltof harður dómur sérstaklega í ljósi þeirra sönnunargagna til stuðnings Rio…