Það var allt útlit fyrir jafntefli í leik Keflavíkur og ÍBV í gærkvöldi þegar Hlynur Stefánsson, fyrirliði Vestmannaeyinga, brá sér í sóknina og tryggði gestunum þrjú stig með því að skora annað mark ÍBV í leiknum á 83. mínútu. Markið bar keim af svipuðu atviki fyrr í sumar þegar Hlynur tryggði ÍBV sigur gegn Fylki í Árbænum. Með sigrinum eru Eyjamenn komnir með 23 stig og eru í öðru sæti í Íslandsmeistarabaráttunni og á góðri siglingu, rétt fyrir stóru helgina í Vestmannaeyjum!