KR og Fjölnir gerðu í gær með sér venslasamning. Venslasamningar fela í sér að félög geta lánað fjóra leikmenn í senn til hvors annars. Þeir gætu síðan kallað á mennina aftur með litlum fyrirvara ef á þarf að halda.

Með þessu gætu leikmenn KR sem eru við það að komast í hópinn verið lánaðir til Fjölnis þar sem þeir öðlast leikreynslu. Ef einhverjir meiðast svo í KR liðinu þá væri hægt að kalla á þessa menn í hópinn fyrirvaralaust. Sama gildir á hinn veginn.