Doni til United? Manchester United er alveg við það að kaupa hinn 27 ára gamla miðjumann Atalanta, Cristiano Doni. Samkvæmt Soccernet.com þá hafa félögin komist að samkomulagi um 2 milljón punda kaupverð. United menn skoðuðu Doni fyrst í leik gegn Roma og hafa útsendarar United skoðað hann reglulega eftir það.

Doni er sókndjarfur miðjumaður sem getur einnig spilað á kantinum sem kemur United vel því þá vantar mann sem getur leyst Ryan Giggs af hólmi einstaka sinnum.

Ástæða þess að Doni er svona ódýr er að hann verður samningslaus næsta sumar. Reyndar hafði hann framlengt um ár en var með ákvæði í þeim samningi að hann mætti fara ef eitthvað stórlið vildi fá hann.