Gylfi Einarsson, leikmaður Fylkis, hefur verið kosinn leikmaður annars hluta Landssímadeildar karla árið 2000 af blaðamönnum DV-Sport. Gylfi var með 4,17 í meðaleinkunn í 7. til 12. umferð deildarinnar, jafn mikið og Gunnlaugur Jónsson, ÍA, en var oftar valinn maður leiksins eða tvisvar. Gylfi er þessa stundina efstur í stoðsendingum í deildinni og hefur skorað sjö mörk, einu marki færra en Guðmundur Steinarsson, Keflavík, markahæsti maður deildarinnar.