Í pistli sem birtist í þýska blaðinu Bild fer Franz Beckenbauer ekki fögrum orðum um Oliver Bierhoff, framherja AC Milan. Hann fór sérstaklega í taugarnar á Franz í landsleik Þjóðverja gegn Frökkum en samt spilaði hann bara í 20 mínútur. Honum tókst að vera rangstæðum 10 sinnum á þessum stutta tíma. Hann hljóp hreinlega ekki nógu hratt til baka.

“Ég verð að spyrja hvað sé að verða um Bierhoff? Hann kemst ekki í lið hjá Milan og þarf að slást fyrir sæti sínu í þýska landsliðinu.” segir Beckenbauer og augljóslega alveg búinn að fá nóg af Bierhoff.