Garðbæingar gerðu góða ferð í Laugardalinn er Stjörnumenn unnu Framara og innbyrtu þar með þriðja sigur sinn í sumar. Mörk Stjörnunnar skoruðu Rúnar Páll Sigmundsson og Valdimar Kristófersson en Ronny Petersen kom heimamönnum yfir snemma í leiknum.