Stjórnarmenn Roma fengu hringingu frá brasilíska hernum þar sem miðjumanni þeirra, Emerson, var sagt að halda heim að gegna herskyldu sinni.

Hann þarf að mæta í læknisskoðun 5. mars og svo getur hann klæðst hergallanum. Það ríkir þó ákveðin óvissa með þetta mál þar sem enginn virðist vita hversu lengi Emerson þarf að vera í hernum, en hvort hann fer á líka eftir að koma í ljós.