Gilles Grimandi var hörmulegur í stórtapinu gegn Manchester United á sunnudaginn og hann viðurkennir það á heimasíðu sinni. Hann segist ekki hafa sofið almennilega frá því leiknum lauk og hefur verið frekar þunglyndur.
“Við vorum mjög lélegir og við fengum að kenna á því fyrir það. Ég vil ekki vera með einhverjar afsakanir og ég vil alls ekki að einhver sé að koma með afsakanir fyrir mig. Fyrst ég get tekið hrósi þá verð ég að geta tekið gagnrýni þegar ég stend mig illa.” sagði Grimandi.