Gareth Evans 20 ára gamall vinstri bakvörður hjá varaliði Leeds hefur verið handtekinn og á að mæta fyrir rétt á miðvikudaginn kemur. Hann er grunaður um að hafa ráðist að 30 karlmanni ásamt félagasínum fyrir utan skemmtistað í Leeds síðastliðið föstudagskvöld.
Eins og allir vita eru 4 aðrir Leedsara í málaferlum þessa dagana og ekki bætir þetta orðspor þessa ágæta félags sem hefur verið að standa sig svo vel innanvallar undanfarna daga.
Evans þessi hefur ekki fengið mörg tækifæri með Leeds og það er ólíklegt að hann spili mikið fyrir þá í framtíðinni, en hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir félagið gegn 1860 Munchen í meistaradeilinni í ágúst og spilaði líka gegn Barcelona í 4-0 ósigri á Nou Camp. En eftir að Matteo og Harte náðu báðir sér af meiðslum sem hrjáðu þá í byrjun tímabils hefur Evans ekkert spilað fyrir aðallið Leeds.