Síðastliðin 2 ár hefur Robbie Fowler leikmaður Liverpool verið alveg ofsalega óheppinn í meiðslum, hann hefur alltaf verið að meiðast og ekki alltaf á sama stað heldur. Að þessu sinni meiddist hann í ökkla þegar hann og félagar hans í Liverpool voru að spila æfingaleik gegn Írsku liði svonefndu Glentoran á æfingamóti í Belfast í gær. Til huggunar sigraði Liverpool 4-0 og Robbie skoraði 1 markanna áður en hann var borinn af velli og fór í sjúkraflug beint til Liverpool. Ekki er vitað hversu lengi Fowler verður frá en eitt er víst að þetta mun verða slæmt fyrir Liverpool þar sem Robbie Fowler er frábær framherji, ég spái því nú bara að Titi Camara taki við stöðu Fowlers.