Roma styrkir stöðu sína Roma laggði Vicenza 0:2 á útivelli í Seriu-A og styrktu stöðu sína á toppnum. Mörkin komu bæði á síðasta korteri leiksins. Nágrannar þeirra í Lazio buðu upp á markaveislu á Ólympíuleikvanginum í Róm þar sem skoruð voru átta mörk. Argentínumaðurinn Hernan Crespo skoraði þrennu en hann hefur heldur betur tekið við sér síðan Dino Zoff tók við stjórn liðsins.

Þá sigruðu Juventus erkióvini sína AC Milan á heimavelli.