Real Madrid hefur gert tilboð í franska leikmanninn Zinadine Zidane. Zidane
leikur nú með Juventus. Tilboðið hljóðar upp á 4 milljarða króna og myndi
brasilíski tengiliðurinn Flavio Conceicao fylgja með. Conceicao er reyndar
ekki genginn í raðir Real Madrid en spænska liðiðmun að ölllum líkindum kaupa
hann af Deportivo La Coruna fyrir 1,3 milljarða króna. Menn hugleiða þó
hvernig Real ætlar að fjármagna kaupin, en félagið er stórskuldugt, m.a. vegna kaupanna á Luis Figo fyrir 4,5 milljarða króna.