13. umferð Landssímadeildarinnar í knattspyrnu hófst í kvöld með fjórum leikjum. Í Keflavík unnu Eyjamenn góðan sigur á Keflvíkingum, 2:1. Steingrímur Jóhannesson kom gestunum yfir strax á 10. mín. leiksins. Þannig var staðan í hálfleik. Keflvíkingar komu ákveðnir til síðari hálfleiks og jöfnuðu leikinn á 67. mín.. Rétt undir lok leiksins skoraði Hlynur Stefánsson og tryggði Eyjamönnum 1:2 sigur.
Í Laugardalnum áttust við Framarar og botnlið Stjörnunnar. Framarar komust yfir eftir 16 mín. leik og þannig var staðan í hálfleik. Stjörnumenn jöfnuðu á fimmtu mín. síðari hálfleiks og sjö mínútum síðar voru þeir komnir yfir. Lokatölur voru 1:2.
Uppi á Skaga mættu heimamenn Grindvíkingum. Liðin voru í fjórða til fimmta sæti fyrir leikinn. Grindvíkingar komust yfir á lokamínútum fyrri hálfleiks og staðan var 1:0 í hálfleik. Þegar fimmtán mín. voru til leiksloka jöfnuðu heimamenn metin og komust yfir sex mín. síðar, lokatölur 2:1.
Í Kópavogi skyldu Breiðablik og Fylkir jöfn, 0:0. Blikar fengu kjörið tækifæri á 74. mínútu en þá fengu þeir dæmda vítaspyrnu en skotið fór yfir markið.
Staðan í deildinni er þá þannig að Fylkismenn eru efstir með 26 stig eftir 13 leiki, Eyjamenn koma næstir með 23 stig en hafa leikið 14 leiki, KR-ingar eru í þriðja sæti með 21 stig og 12 leiki, Skagamenn eru einnig með 21 stig en hafa leikið 14 leiki, í fimmta sæti eru Grindvíkingar með 20 stig, Blikar og Keflvíkingar eru með 16 stig, Framarar með 15 og í fallsætunum eru Stjarnan með 10 stig og Leiftursmenn reka lestina með 7 stig.