Ég hef nú bara aldrei séð eins gróft lið og Roma var í kvöld. Jú jú þeir voru auðvitað að gera það sem þeir gátu til að skora 2 mörk og lögðu allt sitt í leikinn, en miðað við allar þessar glórulausu tæklingar sem misstu marks var það mikið mildi að ferill einhvers Liverpool-mannsins endaði ekki í kvöld. Að vísu má auðvitað deila um hvað sanngjörn úrslit hefði verið en að mínu mati hefði annars slakur dómarinn vel hafa gefið fleiri spjöld.