Arsene Wenger er sterklega orðaður við þjálfarastöðuna hjá Barcelona eftir að Capello ákvað að framlengja samning sinn við AS Roma. Sá leikmaður sem yrði væntanlega ánægðastur með að Wenger tæki við er Emmanuel Petit, enn hann kastaði takkaskónum sínum í jörðina fyrir framan Ferrer, þjálfara Barca, um helgina.
Petit hefur mikið álit á Wenger: “Wenger er frábær manneskja og stórkostlegur þjálfari. Þegar við spjöllum er það meira sem vinir.” Petit sagði að Wenger væri líka mikill sálfræðingur.