Woodgate reyndi að stilla til friðar. Nýjustu fréttir af réttarhaldinu á 4 Leeds leikmönnum segja að Woodgate hafi verið að reyna að stilla til friðar í slagsmálunum á milli nokkura hvítra manna og nokkura af asískum ættum. Nýtt vitni segir að hann hafi túlkað atbuðinn á skemmtistaðnum þannig að einn úr hópi þeirra austurlensku hafi verið að reyna að snapa sér slagsmál og Woodgate hafi verið að reyna að stilla til friðar. Það er því ljóst að mörg vitni hafa komið fram og ekki eru þau öll sammála um atburðinn. Þetta á því allt eftir að snúast um það hver er trúanlegastur og hversu vel lögfræðingarnir eiga eftir að vinna úr sínum málum.