Franco Sensi, forseti Roma, vill gera liðið að hinum ítölsku Manchester United með því að fara í samstarf við stórt amerískt íþróttafélag, en United gerðu samning við NY Yankees sem á víst að skila þeim miklum fjármunum í framtíðinni. Sensi sagði að United væri fyrirmyndin hans en hann hefði trú á því að Roma gætu orðið stærri.

“United eru risastórir. Merki þeirra er frægt út um allan heim en þeir hafa nafnið Manchester sem kemur þeim svo langt. Ímyndið ykkur hvað hægt er að gera með merki sem hefur nafnið Roma.” sagði Sensi.