Enski bikarinn (The FA Cup) til landsins Dagana 4-6 sept. nk. verður, elsti og virtasti verðlaunagripur í heimi, FA-bikarinn hér á Íslandi. Arsenal hefur nú unnið Bikarkeppni Enska Knattspyrnusambandsins (FA-Cup) tvisvar í röð og alls í 9 skipti. Ekkert lið hefur unnið þennan bikar þrisvar í röð frá 1886. Enski bikarinn er elsta og frægasta knattspyrnukeppni í veröldinni. Keppnin hófst árið 1871 með þáttöku 15 liða en um 600 lið hefja keppni á þessari leiktíð.
4. september er jafnframt formlegur útgáfudagur hinnar langþráðu Arsenalbókar – sögu klúbbsins í 20 ár. .

Kíkjum á nokkrar staðreyndir um enska bikarinn fyrst hann er hér á landi.

Sigurvegarar:
Manchester United 10
Arsenal 9
Tottenham Hotspur 8
Aston Villa 7
Blackburn Rovers 6
Liverpool 6
Newcastle United 6

Komist í úrslitaleikinn:
Arsenal 16
Manchester United 15
Newcastle United 13
Everton 12
Liverpool 12
Aston Villa 10
W.B.A 10

Tvö lið hafa unnið bikarinn þrisvar í röð, Wanderers (1876, 1877 og 1878) og Blackburn Rovers (1884, 1885, og 1886).