Patrick Vieira miðjumaður Arsenal sat fyrir dómstólum FA í dag og var hann dæmdur í eins leikja bann og að greiða 10000 pund í sekt. Það eru tvö brot sem um er verið að ræða, annarsvegar á móti Leeds þegar hann og félagi hans frá Frakklandi Oliver Dacourt áttust við og hinsvegar þegar hann skallaði Erik Bakke í sama leik sem var með einhverja kynþáttafordóma gegn honum. Allt er þetta til á myndbandi en kynþáttabrot Eriks Bakke er hinsvegar í rannsókn enn og er ekki ljóst hver dómurinn verði en hann gæti fengið allt að 15 leikja bann fyrir þetta. Málið er bara það, á ekki að taka svona mál fyrr í rannsókn og dæma strangari dóma ef menn eru með einhverja kynþátta fordóma. En Vieira er nú ekki alltaf saklaus sko þannig að er ekki í rauninni kominn tími á hann.
“He's not the Messiah! He's a very naughty boy” - Terry Jones, Life Of Brian