Það er deginum ljósara að ekki er hlýtt milli Frakkans David Ginola og John Gregory stjóra Aston Villa. Ginola fékk hlutverk aftasta varnarmanns í varaliðsleik fyrir stuttu og var ekki par ánægður með það, leit á það sem niðurlægingu.

Chantal Stanley umboðsmaður Ginola segir samt að hann sé ekki á leið frá félaginu: “All he can do is try and play his way back into the team.”
Peter Beardsley, fyrrum félagi Ginola segir að enginn leikmaður eigi að þurfa að ganga í gegnum þvílíka niðurlægingu og skilur ekki hvað Gregory er að hugsa.